Liverpool skoðar Davies - City fer á markaðinn - Man Utd vill Gutierrez - Bruno og Garnacho ekki öruggir - Fleiri orðaðir frá United
   fös 13. desember 2024 12:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Svona eru allir riðlarnir í undankeppni HM 2026
Bikarinn sem barist verður um.
Bikarinn sem barist verður um.
Mynd: EPA
Núna áðan var dregið í riðla fyrir Evrópuhluta undankeppni HM 2026 en mótið fer fram í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.

Ísland er í erfiðum riðli eins og áður hefur komið fram.

Það er ekki alveg komið í ljós hvernig allir riðlarnir verða en það miðast af úrslitum í A-deild Þjóðadeildarinnar. Svona fór drátturinn:

Þau tólf lið sem vinna sína riðla komast beint áfram í lokakeppnina, en liðin sem enda í öðru sæti fara í umspil, ásamt þeim fjórum liðum með bestan árangur í síðustu Þjóðadeild og enduðu ekki í efstu tveimur sætum síns riðils. Í umspilinu verður leikið um fjögur laus sæti.

Riðill A
Sigurvegarinn í Þýskaland/Ítalía
Slóvakía
Norður-Írland
Lúxemborg

Riðill B
Sviss
Svíþjóð
Slóvenía
Kosóvó

Riðill C
Tapliðið í Portúgal/Danmörk
Grikkland
Skotland
Hvíta-Rússland

Riðilll D
Sigurvegarinn í Frakkland/Króatía
Úkraína
Ísland
Aserbaídsjan

Riðill E
Sigurvegarinn í Spánn/Holland
Tyrkland
Georgía
Búlgaría

Riðill F
Sigurvegarinn í Portúgal/Danmörk
Ungverjaland
Írland
Armenía

Riðill G
Tapliðið í Spánn/Holland
Pólland
Finnland
Litháen
Malta

Riðill H
Austurríki
Rúmenía
Bosnía
Kýpur
San Marínó

Riðill I
Tapliðið í Þýskaland/Ítalía
Noregur
Ísrael
Eistland
Moldóva

Riðill J
Belgía
Wales
Norður-Makedónía
Kasakstan
Liechtenstein

Riðill K
England
Serbía
Albanía
Lettland
Andorra

Riðill L
Tapliðið í Frakkland/Króatía
Tékkland
Svartfjallaland
Færeyjar
Gíbraltar
Athugasemdir
banner
banner