Fabinho, leikmaður Liverpool, segir að samherji sinn Mohamed Salah sé ánægður hjá félaginu. Salah hefur verið orðaður við Barcelona og Real Madrid að undanförnu.
Fabinho segir að það sé engin furða að Salah sé orðaður við stór félög eftir frábæra frammistöðu hjá Liverpool á síðustu árum.
„Stóru leikmennirnir verða alltaf í slúðrinu," sagði Fabinho.
„Salah er leikmaður Liverpool sem er eitt stærsta félag í heimi. Það er því eðlilegt að hann sé orðaður við önnur lið, sérstaklega úr öðrum deildum."
„Hann er mjög ánægður hér og sáttur með spilamennsku sína. Hann býst við miklu frá sjálfum sér. Hann vill vera bestur og hjálpa liðinu."
Liverpool mætir Manchester United í toppslag á Anfield á sunnudaginn kemur.
Athugasemdir