Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 14. janúar 2023 21:43
Brynjar Ingi Erluson
Georginio Rutter til Leeds (Staðfest)
Georginio Rutter mun spila í treyju númer 24
Georginio Rutter mun spila í treyju númer 24
Mynd: Leeds
Franski sóknarmaðurinn Georginio Rutter er genginn til liðs við Leeds United frá Hoffenheim. Þetta staðfesti enska félagið í kvöld.

Rutter, sem er tvítugur, er uppalinn hjá Rennes, en hann hefur síðustu tvö ár spilað með Hoffenheim í Þýskalandi.

Hann er með tvö mörk í þýsku deildinni á þessari leiktíð og hefur þá lagt upp tvö til viðbótar.

Leeds náði samkomulagi við Hoffenheim um kaup á Frakkanum á dögunum en félagið greiðir 35 milljónir punda.

Rutter skrifaði svo í kvöld undir fimm ára samning við félagið en Leeds staðfestir að félagið hafi borgað metfé fyrir kappann.


Athugasemdir
banner
banner
banner