25.11.26
Handverkshúsið opnar nýja herrafatadeild – hlaðið testósteróni!
MATE DALMAY
Eftir 30 ár í sölu á vönduðum vélum og handverkfærum hefur Handverkshúsið nú bætt enn einni spennandi vídd við starfsemina. Í fyrra hófu þeir sölu á hinum bandaríska Carhartt Workwear-fatnaði sem hefur heldur betur slegið í gegn. Nú hefur verið opnuð sérstök herrafatadeild með enn einu vönduðu bandarísku merki, Iron & Resin.
Nýja deildin er því sannkölluð paradís fyrir karlmenn sem kunna að meta gæði, stíl og smá karakter. Þar má finna allt frá skóm og fatnaði upp í nettar töskur, húfur og kúrekahatta. Sérstaka athygli vekja bandarísku gæðahattarnir frá Bailey Hats, sem eru tilvalin jólagjöf fyrir töffarann sem á allt.
Alvöru skór fyrir alvöru menn
Þeir eru einnig með mikið úrval af vönduðum vinnuskóm frá Carhartt, New Balance, Reebok og Steel Blue. Þar má finna allt frá léttum og sportlegum skóm upp í hlýja og öfluga vinnuskó með stáltá og almennilegum sóla. Hvort sem þú ert í vinnunni, verkstæðinu eða einfaldlega að leita að góðum hversdagsskóm er úr ýmsu að velja.

Meira en bara búð
Heimsókn í Handverkshúsið í Rauðagerði í Reykjavík er raunar upplifun út af fyrir sig. Glæsileg umgjörð, frábær þjónusta hjá strákunum í búðinni og ekki spillir fyrir að þar er boðið upp á gæðakaffi, konfekt og svalandi drykki. Þetta er einfaldlega staður þar sem gott er að staldra við og skoða úrvalið í rólegheitum.
Þar má líka finna heilan heim af skemmtilegum jólagjöfum. Flott verkfæri, Leatherman-verkfæri, veiðihnífar, axlabönd, handverksbækur og ýmislegt annað nytsamlegt sem gæti glatt þann sem erfitt er að kaupa fyrir.

Frá sófanum á smíðanámskeið
En Handverkshúsið snýst ekki bara um að kaupa sér nýjan fatnað eða verkfæri. Þar er einnig boðið upp á fjölbreytt námskeið í handverki og smíðum, svo sem húsgagnasmíði, hnífasmíði, tálgun, silfursmíði, leðursmíði, silfursmíði og trérennsli.
Námskeiðin eru af ýmsum stærðum og gerðum, allt frá stökum kvöldum upp í lengri námskeið sem standa yfir í tíu kvöld. Þau síðarnefndu hafa notið mikilla vinsælda. Þetta er því kjörið tækifæri til að prófa eitthvað nýtt, finna sér áhugamál eða jafnvel uppgötva áður óþekkta hæfileika.
Ef valkvíðinn gerir vart við sig eru gjafabréf frá Handverkshúsinu líka góður kostur. Þau gilda bæði fyrir vörur og námskeið, þannig að viðtakandinn getur sjálfur valið sína uppáhaldsleið.
Staðurinn sem þú ættir að hafa heimsótt fyrr
Það er eiginlega með ólíkindum hvað margir hafa ekki enn uppgötvað Handverkshúsið. Þar er hægt að eyða góðri stund, fá sér almennilegt kaffi, skoða spennandi vörur, ræða heimsmálin og jafnvel leysa nokkur af vandamálum heimsins á meðan maður er á staðnum.
Hvort sem markmiðið er að finna hina fullkomnu jólagjöf, koma sér upp nýju áhugamáli eða verða einfaldlega töffarinn í bænum í Carhartt eða Iron & Resin er Handverkshúsið klárlega staður sem vert er að kíkja við á.


