Lið vikunnar í enska - Martial og Mata í liðinu

Victor Valdes (Middlesbrough) stendur í rammanum en hann varði vel í jafntefli gegn Everton.

Mynd: Getty Images

Eric Bailly (Manchester United) er klárlega traustasti miðvörðurinn sem Jose Mourinho hefur. Var klettur í 2-0 sigri gegn Watford.

Mynd: Getty Images

Michael Keane (Burnley) heldur áfram að gera góða hluti og Chelsea átti í vandræðum með finna leið framhjá honum.

Mynd: Getty Images

Alfie Mawson (Swansea) hefur stigið upp í vörn velska liðsins síðan Paul Clement tók við.

Mynd: Getty Images

Juan Mata (Manchester United) er á flugi og skoraði gegn Watford.

Mynd: Getty Images

Reynsla Joey Barton (Burnley) kom sér vel í jafnteflinu gegn Chelsea. Það var rétt ákvörðun hjá Sean Dyche að sækja þennan vandræðagemsa.

Mynd: Getty Images

Oriol Romey (Southampton) sá til þess að Sunderland átti í vandræðum með að búa til færi fyrir Jermain Defoe.

Mynd: Getty Images

Georginio Wijnaldum (Liverpool) átti það til að hverfa í stórum leikjum með Newcastle en hjá Liverpool er annað uppi á teningnum. Átti hörkuleik í sigrinum gegn Tottenham.

Mynd: Getty Images

Sadio Mane (Liverpool) er mættur aftur og setti bæði í 2-0 sigrinum gegn Tottenham.

Mynd: Getty Images

Manolo Gabbiadini (Southampton) hefur komið með nýja vídd í sóknarleik Southampton.

Mynd: Getty Images

Anthony Martial (Manchester United) hefur fengið talsverða gagnrýni en virðist hafa uppgötvað að hann verður að svara inni á vellinum.

Mynd: Getty Images




