Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 14. febrúar 2021 16:51
Ívan Guðjón Baldursson
Pawson flautaði hálfleikinn af í bullandi skyndisókn Man Utd
Mynd: Getty Images
Leikmenn Manchester United voru brjálaðir þegar Craig Pawson flautaði fyrri hálfleikinn af í viðureign West Bromwich Albion og Man Utd fyrr í dag. Hann flautaði af þegar þrír leikmenn Man Utd voru að sleppa einir framhjá öftustu mönnum WBA.

Staðan var 1-1 í uppbótartíma fyrri hálfleiks og fékk West Brom hornspyrnu undir lokin. Leikmenn West Brom tóku séns og fóru allir fram til að reyna að komast yfir fyrir leikhlé.

Hornspyrnan var hreinsuð frá og voru Rauðu djöflarnir að komast í skyndisókn þegar Pawson flautaði af, en þá var leikklukkan komin um 10 sekúndur yfir uppgefinn uppbótartíma.

Atvikið má sjá hér fyrir neðan og var reiði leikmanna Man Utd augljós. Leikmenn West Brom voru lengi að taka hornspyrnuna og töldu leikmenn Man Utd sig eiga skilið nokkrar sekúndur til að klára sóknina.

Sjáðu atvikið
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner