Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 14. febrúar 2021 08:00
Victor Pálsson
Segir að Isco vilji kveðja Real - Sevilla hefur ekki áhuga
Mynd: Getty Images
Monchi, yfirmaður knattspyrnumála Sevilla, segir að félagið sé ekki á eftir Isco, leikmanni Real Madrid, og staðfesti á sama tíma að leikmaðurinn væri að leitast eftir því að komast burt.

Isco fær lítið sem ekkert að spila undir stjórn Zinedine Zidane hjá Real og er orðaður við hin ýmis félög þessa dagana.

Talað var um áhuga frá Sevilla en Monchi hefur rætt við forseta félagsins og eru engar líkur á að þessi skipti muni eiga sér stað.

„Samtalið entist í um 15 til 20 sekúndur. Hann spurði mig og ég sagði nei, það var allur áhuginn á Isco," sagði Monchi.

„Ég ræði við forsetann eða varaforsetann á hverjum degi og það eru sumir sem þeir spyrja mig út í sem ég hef ekki nefnt. Það er ekki staðan með Isco."

„Þetta eru sögusagnir og það skljanlega því hann vill fara. Hér er stjóri sem hann hefur unnið með á hæsta stigi en það er ekkert í gangi okkar á milli."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner