Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 14. febrúar 2021 14:40
Ívan Guðjón Baldursson
Svíþjóð: Óskar Sverrisson skoraði í sigri Hacken
Mynd: Getty Images
Häcken 3 - 1 Örgryte
1-0 L. Bengtsson ('41)
1-1 M. Adan ('42)
2-1 ('65)
3-1 Oskar Sverrisson ('67)
Rautt spjald: Leikmaður Örgryte ('48)

Oskar Tor Sverrisson og Valgeir Lunddal Friðriksson voru báðir í byrjunarliði Häcken sem lagði Örgryte að velli í æfingaleik í dag.

Staðan var 1-1 í leikhlé en leikmaður Örgryte fékk rautt spjald í upphafi síðari hálfleiks.

Heimamenn nýttu sér liðsmuninn og skoruðu tvö mörk á skömmum tíma til að gera út um leikinn. Oskar skoraði síðasta mark leiksins á 67. mínútu.

Djurgården 0 - 1 AIK

AIK hafði þá betur gegn Djurgården í æfingaleik í kvennaboltanum. Guðbjörg Gunnarsdóttir og Guðrún Arnardóttir eru á mála hjá Djurgården.

Hallbera Gísladóttir leikur fyrir AIK.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner