Fotbolti.net
14.05.24 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Subway

England í dag - Arsenal vonast eftir greiða frá erkifjendum sínum

Man City heimsækir Tottenham

Man City heimsækir Tottenham

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City getur farið langleiðina með að tryggja Englandsmeistaratitilinn er liðið heimsækir Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Lærisveinar Pep Guardiola eru í öðru sæti með 85 stig, einu stigi á eftir Arsenal.

Sigur í kvöld myndi koma liðinu í kjörstöðu um titlinn. Tottenham hafði tapað fjórum leikjum í röð áður en það vann Burnley um helgina.

Man City hefur ekki tapað deildarleik síðan í desember er það laut í lægra haldi fyrir Aston Villa.

Jafntefli dugar ekki Man City til að komast á toppinn en liðið er með slakari markatölu en Arsenal.

Tottenham er einnig í þörf á stigum. Liðið er í 5. sæti, fimm stigum á eftir Aston Villa í baráttunni um Meistaradeildarsæti. Tap eða jafntefli í kvöld útilokar þann möguleika.

Leikur dagsins:
19:00 Tottenham - Man City

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.