02.11.26 - 15:24
Elvar Geir Magnússon
Sandra í FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sandra Hauksdóttir er gengin í raðir FH frá Stjörnunni. Sandra er fædd 2008 en hún gerir þriggja ára samning við Fimleikafélagið.
„Sandra er einn af efnilegustu varnarmönnum landsins og var nýverið valin í U19 ára landslið Íslands," segir í tilkynningu FH.
„Sandra er hraður og áræðinn varnarmaður sem við bindum miklar vonir við. Það gleður okkur að Sandra hafi valið FH til að halda áfram að vaxa og dafna sem leikmaður. Það fellur vel að stefnu félagsins að gefa efnilegum leikmönnum tækifæri til að þróast og taka næstu skref."
FH hafnaði í öðru sæti Bestu deildar kvena í sumar en Stjarnan í því sjötta.