02.11.26 - 16:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Emil: Stormur og svart ský yfir Stjörnunni

'Svart ský sem lá yfir klúbbnum í einhvern tíma'

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jökull var látinn fara eftir erfiða byrjun á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór tók við en náði ekki að snúa skútunni almennilega við.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll er mættur aftur í Garðabæinn.

Tímabilið hjá Stjörnunni gekk alls ekki eins og smurt. Stjarnan þurfti tvisvar að gera þjálfarabreytingar, endaði tímabilið með þriggja þjálfara teymi til bráðabirgða og skömmu fyrir lok tímabilsins var tilkynnt að Rúnar Páll Sigmundsson tæki við liðinu eftir tímabilið.
Emil Atlason hefur verið lykilmaður í liðinu undanfarin tímabil. Emil er reynslumikill framherji sem var markahæsti leikmaður deildarinnar 2023.
Emil ræddi við Fótbolta.net og var spurður út í tímabilið í ár.

TENGT EFNI
Emil saknar Jölla: Hafði trú á mér þegar enginn í Garðabæ hafði það
„Ég held það sé hollt fyrir mig að prófa að fara annað. Stjarnan gaf mér fullt, ég fann minn sjálfstraust hjá Stjörnunni, en mér finnst kominn tími fyrir mig að prófa eitthvað nýtt og fara annað," segir Emil.
Hvernig gerir þú upp tímabilið 2026 hjá Stjörnunni?
„Skrautlegt, mjög skrautlegt. Það er margt sem spilar inn í, en heilt yfir er þetta mikill lærdómur. Þetta er rosalega lærdómsríkt tímabil fyrir alla; fyrir Stjörnuna, fyrir mig, fyrir aðra leikmenn og alla sem koma nálægt Stjörnunni."
Ertu svekktur hvernig málin voru höndluð varðandi þjálfaramál?
„Ég held að flestir sjái það að þau mál voru ekkert endilega höndluð rétt, en það var gert eins og það var gert. Mér fannst þetta kannski ekki rétti tímapunkturinn til að gera þjálfaraskipti. Allt í góðu með það, en í kjölfar þess kemur ákveðinn stormur yfir klúbbinn og svart ský sem lá yfir klúbbnum í einhvern tíma."
„En mér líður eins og það sé að birta til með innkomu Rúnars Páls og Halldórs Orra, og svo er Gaui Bald kominn í þetta líka, allt glerharðir Stjörnumenn og Garðbæingar. Það eru bjartir tímar framundan hjá Stjörnunni."
Jökull Elísabetarson var látinn fara í júní og um tveimur mánuðum síðar var Jón Þór Hauksson látinn fara. Stjarnan náði í lokaumferðinni að komast upp í 7. sætið, efsta sæti neðri hlutans, en liðinu var spáð 3. sæti fyrir mót.
Tek öllu lífinu sem lærdóm
Þú skorar tíu mörk í deildinni, fjögur í bikar og þrjú í Evrópu. Ert þú persónulega sáttur við tímabilið eða hugsar þú að þú hefðir getað gert betur?
„Það er alltaf hægt að gera betur, engin spurning, en ég er svo einfaldur að ég horfi á þetta sem lærdóm og tek öllu í lífinu sem lærdóm. Ég reyni að læra af því sem ég get lært af á þessu tímabili," segir framherjinn sem hefur nú nýjan kafla í Úlfarsárdal.
Hvernig gerir þú upp tímabilið 2026 hjá Stjörnunni?
„Skrautlegt, mjög skrautlegt. Það er margt sem spilar inn í, en heilt yfir er þetta mikill lærdómur. Þetta er rosalega lærdómsríkt tímabil fyrir alla; fyrir Stjörnuna, fyrir mig, fyrir aðra leikmenn og alla sem koma nálægt Stjörnunni."
Ertu svekktur hvernig málin voru höndluð varðandi þjálfaramál?
„Ég held að flestir sjái það að þau mál voru ekkert endilega höndluð rétt, en það var gert eins og það var gert. Mér fannst þetta kannski ekki rétti tímapunkturinn til að gera þjálfaraskipti. Allt í góðu með það, en í kjölfar þess kemur ákveðinn stormur yfir klúbbinn og svart ský sem lá yfir klúbbnum í einhvern tíma."
„En mér líður eins og það sé að birta til með innkomu Rúnars Páls og Halldórs Orra, og svo er Gaui Bald kominn í þetta líka, allt glerharðir Stjörnumenn og Garðbæingar. Það eru bjartir tímar framundan hjá Stjörnunni."
Jökull Elísabetarson var látinn fara í júní og um tveimur mánuðum síðar var Jón Þór Hauksson látinn fara. Stjarnan náði í lokaumferðinni að komast upp í 7. sætið, efsta sæti neðri hlutans, en liðinu var spáð 3. sæti fyrir mót.
Tek öllu lífinu sem lærdóm
Þú skorar tíu mörk í deildinni, fjögur í bikar og þrjú í Evrópu. Ert þú persónulega sáttur við tímabilið eða hugsar þú að þú hefðir getað gert betur?
„Það er alltaf hægt að gera betur, engin spurning, en ég er svo einfaldur að ég horfi á þetta sem lærdóm og tek öllu í lífinu sem lærdóm. Ég reyni að læra af því sem ég get lært af á þessu tímabili," segir framherjinn sem hefur nú nýjan kafla í Úlfarsárdal.

Jökull var látinn fara eftir erfiða byrjun á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór tók við en náði ekki að snúa skútunni almennilega við.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll er mættur aftur í Garðabæinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

TENGT EFNI
Jökull ræðir brottreksturinn: Virkilega vonsvikinn með vinnubrögðin

TENGT EFNI
Jón Þór: Þarf illan hug til að búa til svona ljótar sögur

TENGT EFNI
Jón Þór: Þar komu fyrstu rauðu flöggin fram

TENGT EFNI