Fotbolti.net
02.11.26 - 16:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Rúnar Kristins: Skrítið að þeir hafi ekki fengið meiri athygli

Rúnar Kristins: Skrítið að þeir hafi ekki fengið meiri athygli
Canon

Mynd: Hafliði Breiðfjörð/Samsett

Tveir ungir leikmenn voru í stóru hlutverki hjá Fram í Bestu deildinni í sumar. Freyr Sigurðsson (2005) átti mjög gott tímabil inn á miðjunni og Þorri Stefán Þorbjörnsson (2006) var í varnarlínunni.

Þorri hefur verið orðaður við atvinnumennsku en til þessa hefur lítið heyrst af þeim möguleika hjá Frey. Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var spurður hvort þessir tveir ungu menn gætu farið út í atvinnumennsku í vetur.
Úr varaliði Sindra í U21 á þremur árum - „Á fullt inni"
TENGT EFNI

Úr varaliði Sindra í U21 á þremur árum - „Á fullt inni"

„Það er alveg möguleiki á því. Núna er mótið nýbúið og ekkert að gerast í þessum málum, þá finnst manni harla hæpið að einhver fari að taka þá núna. Menn fara kannski að skoða þetta á nýju ári, þegar Íslandsmótið fer af stað, þá er hægt að fylgjast með mönnum í alvöru leikjum."

„Það er bara skrítið að þeir hafi ekki fengið meiri athygli frá liðum sem eru að skoða leikmenn. Þú þarft alltaf smá heppni með þér, eiga rétta leikinn á réttu tímasetningunni; þegar einhver er uppi í stúku að horfa á þig. Í dag eru menn með fleiri tól til að fylgjast með mönnum, geta séð alla leiki. Ég held að menn vilji helst sjá fleiri en einn leik hjá mönnum áður en ákveðið er að kaupa þann leikmann."

„Þú verður að standa þig í hverjum einasta leik, hver og einn leikur er bara próf. Þú ert að spila vel fyrir þig, þjálfarann og mögulega þá sem eru að fylgjast með. Ef þú spilar alltaf einn góðan og einn lélegan leik til skiptis þá er engin samfella og menn horfa í það,"
segir Rúnar.
Freyr Sigurðsson

Freyr Sigurðsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorri Stefán

Þorri Stefán

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.