02.11.26 - 15:04
Elvar Geir Magnússon
Milner hljóp New York maraþonið

Mynd: EPA

Mynd: EPA
James Milner tók þátt í sínu fyrsta maraþoni um helgina en hann hljóp hið vinsæla New York maraþon.
Milner, sem er 40 ára, er búinn að leggja fótboltaskóna á hilluna og hefur tekið fram hlaupaskóna.
Hann hljóp maraþonið á glæsilegum tíma; þremur klukkustundum, níu mínútum og fjórum sekúndum.
Milner hljóp til styrktar góðu málefni og notaði gervigreind til að búa til æfingaprógramm áður en hann tók þátt í hlaupinu.
Milner varð enskur meistari með Manchester City og Liverpool á ferli sínum, auk þess að hann vann Meistaradeildina með síðarnefnda félaginu. Síðustu ár ferils síns lék hann með Brighton.

The Iron Man's days on the pitch may be over, but James Milner just keeps on running ???????
— Premier League USA (@PLinUSA) November 1, 2026
And he completed it in 3 hours, 9 minutes: averaging 7:13 per mile! ???? https://t.co/OnHPe9ayuu