Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   fim 14. maí 2026 11:29
Brynjar Ingi Erluson
Sex tilnefndir sem stjóri tímabilsins - Carrick á listanum
Michael Carrick er einng af þeim sem er tilnefndur sem stjóri ársins
Michael Carrick er einng af þeim sem er tilnefndur sem stjóri ársins
Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildin hefur tilnefnt sex stjóra sem besta stjóra tímabilsins, en Englendingurinn Michael Carrick er einn af þeim sem er tilnefndur.

Arteta er talinn líklegastur til þess að vinna verðlaunin eftir frábært tímabil með Arsenal. Liðið er í lykilstöðu til þess að vinna deildina í fyrsta sinn síðan 2004.

Pep Guardiola hjá Manchester City er einnig tilnefndur, en City er aðeins tveimur stigum frá Arsenal.

Andoni Iraola, Keith Andrews, Regis Le Bris og Carrick fá einnig tilnefningu.

Iraola hefur verið að gera gott mót með Bournemouth, Andrews með Brentford og þá hafa nýliðar Sunderland komið á óvart undir stjórn Le Bris.

Carrick tók við United í byrjun árs og tókst að koma liðinu aftur í Meistaradeild Evrópu. United var í sjötta sæti þegar Carrick tók við, en honum tókst að rífa liðið upp töfluna og í 3. sætið sem er nú tryggt.

Tilnefningar til stjóri ársins:
Mikel Arteta (Arsenal)
Pep Guardiola (Man City)
Andoni Iraola (Bournemouth)
Regis Le Bris (Sunderland)
Keith Andrews (Brentford)
Michael Carrick (Man Utd)


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner
banner