Stockport tryggði sér sæti í úrslitum í umspili um sæti í Championship deildinni með 2-0 sigri á Stevenage í gær. Liðið vann viðureignina samanlagt 3-0 og mætir því annað hvort Bradford eða Bolton í úrslitum.
Benoný Breki Andrésson er leikmaður Stockport. Hann er að jafna sig af meiðslum og kom inn á sem varamaður undir lokin.
Benoný fékk kallið í landsliðshópinn í gær sem mætir Japan í lok maí. Það var því mikið efni til að fagna fyrir kappann í gær.
Hann stýrði Víkingaklappi með stuðningsmönnum liðsins sem höfðu hlaupið inn á völlinn þegar sigurinn gegn Stevenage var í höfn.
Icelandic striker Beno Andresson celebrates #StockportCounty's Wembley appearance and his call-up to the senior national team - by leading the thunderclap at Edgeley Park for the remaining pitch invaders.
— Sam Byrne (@_SByrne) May 13, 2026
???????????????????????? pic.twitter.com/w9dh0Zpq4Z





