Fotbolti.net
14.05.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Hearts og Celtic mætast í hreinum úrslitaleik

Tómas Bent Magnússon

Tómas Bent Magnússon

Canon

Mynd: Hearts/Skjáskot

Það er ljóst að Hearts muni heimsækja Celtic á laugardaginn í hreinum úrslitaleik um sigur í skosku deildinni.

Bæði lið spiluðu í næst síðustu umferð í gær. Hearts hefði tryggt sér sigur í deildinni með sigri á Falkirk og hefði þurft að treysta á að Celtic myndi tapa gegn Motherwell.
Hearts, sem er án Tómasar Bent Magnússonar sem er fjarverandi veegna meiðsla, vann öruggan 3-0 sigur á Falkirk.

Það var hins vegar mikil spenna í viðureign Motherwell og Celtic. Celtic komst í 2-1 eftir klukkutíma en Liam Gordon jafnaði metin þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma.

Celtic fékk umdeilda vítaspyrnu í blálokin og Kelechi Iheanacho skoraði úr henni og tryggði liðinu sigurinn. Þessi úrslit þýða að Hearts er með eins stigs forystu á Celtic, og markatalan Hearts í hag, fyrir leik liðanna í lokaumferðinni kl 11:30 á laugardaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.