Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
banner
   fim 14. maí 2026 18:31
Viktor Ingi Valgarðsson
Jói Kalli tekur ábyrgð: Eitt að tapa leik en annað á þennan hátt
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH tapaði 5-0 fyrir Lengjudeildarliði Fylkis í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarins í dag. Mikil spenna var fyrir þessari viðureign og þá aðalega vegna þjálfaramál liðanna. En Jóhannes Karl tók við FH af Heimir Guðjónsson sem þjálfar Fylkir í dag.


Lestu um leikinn: Fylkir 5 -  0 FH

Gríðarlega svekkjandi, komum náttúrulega til að mæta Fylkismönnum af hörku. Vissum að þeir myndu koma vel víraðir inn í þennan leik. Kannski héldum við að þetta yrði ekki eins erfitt en eftir fyrsta markið sem er pínu heppnis stimpill yfir gegnu Fylkir bara á lagið og kláruðu leikinn í fyrri hálfleik." 

„Hefðum getað komið í veg fyrir mörkin miklu fyrr, vorum ekki að stoppa þá í þeirra aðgerðum. Komust mikið í fyrirgjafir og horn. Við vorum alltof passívir og ragir. Sem er enginn leið til að mæta í bikarleik."

„Það er eitt að tapa leik en annað á þennan hátt. Sérstaklega fyrri hálfleikurinn þar sem við vorum hræddir og þorðum ekki að færa öftustu línu, hliðar til hliðar og þorðum ekki að stíga nógu vel upp."

„Þetta er eitthvað sem ég þarf að taka ábyrgð á. Ég stilli liðinu upp og bý til leikplanið. Það er í mínum höndum að sjá til að menn mæti grimmir til leiks. Þannig ég tek fulla ábyrgð á því og þarf að skoða hvað ég hefði getað gert betur í dag."

„Við þurfum að vera ansi fljótir að skipta um ham og fókusa á leikinn gegn KA á sunnudaginn."

Eins og hann nefnir er næsti leikur FH í Bestu Deildinni og fá þeir KA frá Akureyri. KA datt einnig úr Mjólkurbikarnum í dag í leik gegn Ægir.

„Getum verið töluvert hættulegri sóknarlega heldur en við sýndum í dag. Þurfum að skilja þennan leik eftir. Bikarinn er bara búin og deildin er okkar næsta verkefni. Við þurfum að vera klárir, því að svona frammistaða eins og í dag er ekki nógu góð. Reyna líka að tengja sama góðar frammistöður í tveimur hálfleikjum."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan 


Slapp
banner