Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
   fim 14. maí 2026 08:45
Elvar Geir Magnússon
„Viðbjóðslegi“ dómurinn sem hefur gert allt brjálað í Skotlandi
Löglegur skalli eða hendi og víti?
Löglegur skalli eða hendi og víti?
Mynd: Skjáskot
John Beaton dómari.
John Beaton dómari.
Mynd: EPA
Daizen Maeda, leikmaður Celtic.
Daizen Maeda, leikmaður Celtic.
Mynd: EPA
Eftir úrslit gærdagsins er ljóst að Celtic tekur á móti Hearts á laugardaginn í hreinum úrslitaleik í lokaumferðinni um skoska meistaratitilinn. Hearts, sem sigraði Falkirk 3-0 í gær, nægir jafntefli.

Allt stefndi hinsvegar í að liðinu myndi duga að tapa með tveggja marka mun í úrslitaleiknum því Celtic var að gera jafntefli gegn Motherwell en fékk svo vægast sagt umdeilda vítaspyrnu í uppbótartíma og skoraði sigurmarkið, 3-2, þegar níu mínútur voru komnar framyfir venjulegan leiktíma.

Derek McInnes, stjóri Hearts, segir að sitt lið sé „að berjast gegn öllum öðrum“ og að vítadómurinn hafi verið „viðbjóðslegur“.

Vítadómurinn - „Ein versta VAR ákvörðun sem ég hef séð“
Langt inn í uppbótartíma þegar staðan var 2-2 í leik Celtic gegn Motherwell kallaði VAR-dómarinn Andrew Dallas aðaldómara leiksins, John Beaton, í skjáinn eftir að Sam Nicholson leikmaður Motherwell hafði farið upp í háan bolta.

Í endursýningum virtist boltinn hafa farið í höfuð Nicholson en ekki í hönd hans. En Beaton dæmdi vítaspyrnu og Kelechi Iheanacho skoraði sigurmarkið úr henni.

Fjölmiðlamaðurinn Gary Lineker skrifaði á X að þetta væri mögulega versta VAR ákvörðun sem hann hefði séð. Talað er um að VAR eigi að nota í augljósum mistökum en þetta atvik var svo sannarlega ekki augljóst.

Annar vafasamur dómur sem fellur með Celtic
„Þetta er viðbjóður. Þetta er það sem við erum að keppa við, við erum að berjast gegn öllum öðrum. Mér finnst þetta ekki vera vítaspyrna. Þetta er svo dapurt og það lítur út fyrir að Celtic hafi verið gefið þetta. Þeir eru mjög heppnir," sagði stjóri Hearts við Sky Sports.

Kollegi hans, Jen Berthel Askou stjóri Motherwell, tók í sama streng: „Á hvaða vegferð erum við? Ég er í áfalli. Ég hélt ég væri búinn að sjá allt en svo er greinilega ekki. Eftir að hafa skoðað þetta get ég ekki með nokkru móti séð að þetta eigi að vera vítaspyrna. Ég sé boltann ekki fara í höndina á honum en ef það gerðist þá var hendinni ýtt í boltann. Leikurinn á meira skilið en þetta," sagði Askou.

Sitt sýnist hverjum og Martin O'Neill, stjóri Celtic, segir að dómurinn hafi verið réttur. Kris Boyd, sérfræðingur Sky Sports, segir hinsvegar að stóru atvikin á lokasprettinum hafi fallið Celtic í vil.

„Boltinn fer klárlega í höfuðið á honum. Annar vafasamur dómur sem fellur Celtic í vil. Það þarf að spyrja alvarlegra spurninga um þetta," sagði Boyd.

Tómas Bent Magnússon, fyrrum leikmaður Vals og ÍBV, er meðal leikmanna Hearts en hann er á meiðslalistanum. Úrslitaleikurinn á laugardaginn verður 11:30 að íslenskum tíma og Hearts, sem þarf að forðast tap, getur orðið fyrsta liðið í fjóra áratugi fyrir utan Celtic og Rangers til að verða Skotlandsmeistari. Hearts varð síðast meistari 1960.

Vítadómurinn:


Slapp
banner
banner
banner