Fotbolti.net
14.06.05 - 19:19
Hafliði Breiðfjörð

Laurent Robert til Portsmouth (Staðfest)

Laurent Robert til Portsmouth (Staðfest)
Canon
Franski miðvallarleikmaðurinn Laurent Robert skrifaði nú í kvöld undir þriggja ára samning við Porstmouth en hann kemur frá Newcastle United þar sem honum samdi ekki við stjórann Graeme Souness. Kaupverð hefur ekki verið gefið upp.
Robert var keyptur til Newcastle frá Paris St Germain árið 2001 á 9,5 milljónir punda en eftir síðasta leikinn á tímabilinu sem lauk í maí tilkynnti hann að þetta væri hans síðasti leikur með félaginu og hann gaf allann búninginn sinn og skó til stuðningsmanna liðsins í stúkunni.

Bolton var einnig að reyna að ná leikmanninum og hafði boðið honum tveggja ára samning en talið er að ástæða þess að hann valdi Porstmouth hafi verið sú að þeir buðu honum þriggja ára samning.

Talið er líklegt að Newcastle fái 2 milljónir punda fyrir leikmanninn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.