Fotbolti.net
14.06.19 - 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ribery orðaður við Sheffield United

Franck Ribery fagnar marki með Bayern München.

Franck Ribery fagnar marki með Bayern München.

Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield United hefur áhuga á franska kantmanninum Frank Ribery. Þetta segir þýski fjölmiðillinn Kicker.
Ribery er 36 ára og er goðsögn hjá þýska stórliðinu Bayern München. Hann var að kveðja Bayern eftir 12 ára veru hjá félaginu og verður hann samningslaus í sumar.

Sheffield United, sem verður nýliði í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð, er sagt hafa áhuga á því að fá Ribery í sínar raðir fyrir baráttuna í ensku úrvalsdeildinni.

Kicker segir þó jafnframt að Ribery vilji spila fyrir stærra félag en Sheffield United. Það verður spennandi að sjá hvað gerist hjá honum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.