26.08.26 - 13:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Leysir Martínez vandamál Chelsea?

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Emiliano Martínez gæti farið til Chelsea ef marka má David Ornstein hjá The Athletic. Hann segir frá því að Chelsea sé í viðræðum við teymi markvarðarins um að ganga í raðir félagsins.
Martínez er markvörður Aston Villa og vann Evrópudeildina með félaginu á síðasta tímabili. Argentínumaðurinn hefur verið boðinn til annarra félaga þar sem Japaninn Zion Suzuki verður aðalmarkvörður liðsins á tímabilinu. Martínez var einnig boðinn til Tottenham.

Fabrizio Romano segir að Martínez myndi segja já við Chelsea ef félagið vill fá hann, þrátt fyrir að Chelsea spili ekki í Evrópu á tímabilinu.
Martínez er 33 ára og varð heimsmeistari með Argentínu 2022. Sagt er að Villa vilji fá um 8,5 milljónir punda fyrir kappann. Martínez var orðaður við Juventus en ítalska félagið valdi frekar að fá Guglielmo Vicario frá Tottenham.
Robert Sanchez hefur verið aðalmarkvörður Chelsea en margir hafa sett spurningamerki við hvort hann sé nægilega góður fyrir lið sem ætlar sér að berjast við topp ensku úrvalsdeildarinnar. Hann átti ekki góðan leik gegn Fulham í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar.