26.08.26 - 13:59
Elvar Geir Magnússon
Forest reynir að fá vængbakvörð frá Celta Vigo

Javi Rueda.

Mynd: EPA

Javi Rueda.

Mynd: EPA
Viðræður Nottingham Forest um að fá vængbakvörðinn Javi Rueda frá Celta Vigo eru komnar vel á veg samvæmt frétt The Athletic.
Strákarnir í Skírisskógi eru í leit að hægri vængbakverði en þeim mistókst að fá Anan Khalaili sem gekk í raðir Crystal Palace frá Royale Union Saint-Gilloise.

Hinn 24 ára gamli Rueda er nú aðalskotmark Forest og félagið vinnur að því að ná samkomulagi við Celta og munnlegu samkomulagi við leikmanninn um kaup og kjör.
Rueda var hjá Real Madrid en fór til Celta 2023. Hann lék 27 leiki í La Liga á síðasta tímabili og vakti athygli í Evrópudeildinni þar sem hann skoraði í báðum leikjum gegn Lyon í 16-liða úrslitum.
Í morgun tilkynnti Forest að hægri bakvörðurinn ungi Eric da Silva Moreira, 20 ára, væri farinn á lán til Excelsior í Hollandi.
Oliver Glasner, nýr stjóri Palace, vill spila með þriggja miðvarða kerfi og vængbakverði. Ola Aina hefur byrjað sem hægri vængbakvörður í báðum tapleikjunum gegn Leeds.