Fotbolti.net
26.08.26 - 16:43
Elvar Geir Magnússon

Atletico svarar Barcelona: 0% líkur á að við seljum ykkur hann

Julian Alvarez er 26 ára.

Julian Alvarez er 26 ára.

Canon

Mynd: EPA

Spænska félagið Atletico Madrid segir að það séu „0% líkur“ á að Julian Alvarez verði seldur til Barcelona.

Börsungar hafa ekki farið leynt með áhuga á að fá argentínska sóknarmanninn og Joan Laporta, forseti Barcelona, sagði í dag að áhuginn væri enn til staðar og 100 milljóna evra tilboð væri enn á borði Madrídarfélagsins.

Sagt er að Barcelona muni halda áfram að eltast við Alvarez þar til félagaskiptaglugganum verði lokað en það andar köldu milli félagsins og Atletico Madrid.
Spánn: Meistararnir skoruðu fimm í fyrsta leik - Baulað á Alvarez
TENGT EFNI

Spánn: Meistararnir skoruðu fimm í fyrsta leik - Baulað á Alvarez

„Þetta snýst ekki um peninga, þetta snýst um reisn. Leikmaðurinn gerður að fórnarlambi en eina fórnarlambið í málinu erum við. Herferð sem hefur beinst að okkur hefur einkennst af lygum og ekki allur sannleikurinn verið sagður. Þetta hefur skaðað okkur. Það eru 0% líkur á að hann verði seldur til Barca,“ segir Atletico Madrid.

Arsenal hefur einnig sýnt Alvarez áhuga en samkvæmt heimildum BBC vill hann vera áfram á Spáni.

Alvarez kom inn á sem varamaður á 66. mínútu í 2-2 jafntefli Atletico gegn Villarreal um síðustu helgi. Stuðningsmenn Atletico bauluðu á leikmanninn en hann er sagður vilja fara til Barcelona. Eftir lokaflautið fór hann beint inn í klefa en klappaði ekki til stuðningsmanna eins og samherjar sínir gerðu.

Barcelona hefur í allt sumar reynt að fá Alvarez en Atletico er ákveðið í að selja hann ekki til Katalóníu.
Alvarez kom inn af bekknum en stuðningsmenn Atletico bauluðu á hann.

Alvarez kom inn af bekknum en stuðningsmenn Atletico bauluðu á hann.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.