26.08.26 - 15:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Keflavík spilar á Ljósanótt - Leik í lokaumferð fyrir skiptingu flýtt

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
22. umferð Bestu deildarinnar, síðasta umferðin fyrir tvískiptingu, verður spiluð aðra helgi. Þangað til í gær voru allir leikir skráðir á sama tíma sunnudaginn 6. september.
Í gær var samþykkt að flýta einum leik um tæpan sólarhring og verður sá leikur stakur leikur á laugardeginum. Sá leikur er viðureign Keflavíkur og Vals.
Það var ósk Keflavíkur að fá að spila leikinn á laugardeginum þar sem þá helgina er Ljósanótt í bænum og laugardagskvöldið hápunktur hátíðarinnar. Það eru því líkur á því að talsvert fleiri komi á leikinn á laugardeginum en hefðu komið daginn eftir.

Það vekur athygli að KSÍ gefi grænt ljós á breytinguna því bæði lið, Keflavík og Valur, eru í baráttu um að enda í efri hluta deildarinnar þegar deildinni verður skipt í efri og neðri hluta eftir 22 umferðir.
Keflavík er í 5. sæti sem stendur þegar sex stig eru í pottinum, fjórum stigum fyrir ofan Stjörnuna sem er í 7. sæti og fimm stigum á undan Val sem er í 8. sætinu. Stöðuna í deildinni má sjá hér að neðan.
Var: 06.09.2026 14:00, HS Orku völlurinn
Verður: 05.09.2026 16:30, HS Orku völlurinn
Svona lítur 22. umferðin út
laugardagur 5. september
16:30 Keflavík-Valur (HS Orku völlurinn)
sunnudagur 6. september
14:00 Þór-FH (VÍS völlurinn)
14:00 ÍA-KR (ELKEM völlurinn)
14:00 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)
14:00 KA-Breiðablik (Greifavöllurinn)
14:00 Stjarnan-ÍBV (Samsungvöllurinn)

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 20 | +46 | 51 |
| 2 | KR | 20 | +27 | 43 |
| 3 | Fram | 20 | +14 | 43 |
| 4 | Breiðablik | 20 | +5 | 30 |
| 5 | Keflavík | 20 | -3 | 28 |
| 6 | ÍA | 20 | -4 | 26 |
| 7 | Stjarnan | 20 | -10 | 24 |
| 8 | Valur | 20 | -7 | 23 |
| 9 | FH | 20 | -12 | 18 |
| 10 | ÍBV | 20 | -12 | 17 |
| 11 | KA | 20 | -14 | 16 |
| 12 | Þór | 20 | -30 | 15 |