Fotbolti.net
26.08.26 - 16:00
Elvar Geir Magnússon

Hollywoodliðið styrkir sig

Issa Kabore.

Issa Kabore.

Canon

Mynd: Wrexham

Issa Kabore er að ganga alfarið í raðir Wrexham en hann lék með liðinu á lánssamningi frá Manchester City á síðasta tímabili og átti þessi 25 ára leikmaður 8 stoðsendingar í 32 leikjum.

Wrexham kaupir leikmanninn á tæplega 5 milljónir punda en City fær 20% af framtíðarsölu og einnig forkaupsrétt.

Kabore er hægri bakvörður og landsliðsmaður Búrkína Fasó. Hann hefur leikið fyrir Troyes, Marseille, Luton Town, Benfica og Werder Bremen á lánssamningum.
Þá er Wrexham að fá Jacques Ekomie, vinstri bakvörð frá Angers í Frakklandi. Ekomie er 23 ára gabonskur landsliðsmaður sem var fastamaður hjá Angers.

Wrexham hefur gert jafntefli í báðum leikjum sínum í Championship, ensku B-deildinni.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough17+1435
2Stoke City17+835
3Wolves17+1234
4Birmingham17+1532
5West Brom17+1032
6Southampton17+1628
7QPR17+728
8Swansea17+327
9Sheffield Utd17+626
10Portsmouth17+326
11Norwich17+925
12Blackburn17025
13West Ham17+1324
14Wrexham17-122
15Charlton Athletic17-720
16Bristol City17-1019
17Cardiff City17-518
18Millwall17-618
19Bolton17-1118
20Watford17-1515
21Lincoln City17-1615
22Preston NE17-1312
23Burnley17-1111
24Derby County17-2110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.