26.08.26 - 16:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fredericia vill fá Dag Orra

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dagur Orri Garðarsson er á blaði hjá danska félaginu Fredericia sem hefur áhuga á framherjanum. Hann er samningsbundinn Val út 2030 og því þarf að kaupa hann af Val.
Kristján Óli Sigurðsson í Þungavigtinni segir í færslu á X að Dagur sé á leið til danska félagsins. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er það ekki frágengið.
Dagur Orri, sem varð 21 árs á mánudag, kom til Vals frá uppeldisfélaginu Stjörnunni í vetur eftir að hafa verið á láni hjá HK í Lengjudeildinni.

Hann meiddist í maí og missti af tveimur mánuðum vegna meiðslanna. Hann hefur skorað þrjú mörk í ellefu leikjum í Bestu deildinni í sumar.
Dagur er sonur fyrrum atvinnu- og landsliðsmannsins Garðars Jóhannssonar og er eldri bróðir Bjarka Hrafns sem er á mála hjá Dortmund.
Fredericia er taplaust eftir fimm leiki í dönsku B-deildinni, liðið er með níu stig í 4. sæti. Daníel Freyr Kristjánsson lék með liðinu síðustu tvö tímabil á láni frá Midtjylland en gekk í sumar í raðir Lyngby.

Dagur Orri Garðarsson á leið til FC Fredricia í dönsku 1. deildinni.#HeimavinnaHöfðingjans
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) August 26, 2026

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð