Svona er byrjunarlið FH í sögulegum leik


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennalið FH leikur í dag sinn fyrsta Evrópuleik í sögu félagsins þegar það heimsækir kýpversku meistarana í Apollon Ladies á heimvelli þeirra, Stelios Kyriakides Stadium.
Leikurinn er fyrri viðureign liðanna í fyrstu umferð forkeppni Evrópubikarsins og hefst klukkan 15:00 að íslenskum tíma.
Guðni og Hlynur Eiríkssynir gera fjórar breytingar á byrjunarliðinu frá 0-1 tapinu gegn Víkingi í síðustu umferð Bestu deildarinnar.
Aldís Guðlaugsdóttir kemur í markið í stað Steinunnar Ernu Birkisdóttur. Helena Errington, Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir og Jónína Linnet koma einnig inn í liðið en Anna Heiða Óskarsdóttir, Nia Christopher og Hafrún Birna Helgadóttir setjast á varamannabekkinn.
Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn og að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á fótbolti.net.
Byrjunarlið Apollon Ladies
- 31. Isabella Hara (m)
- 2. Mallory Mooney
- 7. Eleni Giannou
- 8. Filippa Savva
- 10. Lainey Higgins
- 11. Natasha Hudson
- 15. Olivia Pearse
- 17. Marilena Georgiou
- 21. Krystyna Freda
- 33. Maria Ficzay
- 77. Jelena Prvulovic
Byrjunarlið FH
- 1. Aldís Guðlaugsdóttir
- 2. Birna Kristín Björnsdóttir
- 5. Mackenzie Elyze Smith
- 8. Helena Maree Errington
- 13. Deja Jaylyn Sandoval
- 19. Hildur Katrín Snorradóttir
- 20. Ásdís Karen Halldórsdóttir
- 29. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
- 37. Jónína Linnet
- 41. Ingibjörg Magnúsdóttir
- 15. Hrönn Haraldsdóttir
