26.08.26 - 17:57
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðin í enska deildabikarnum: Margar breytingar hjá Newcastle og Tottenham

Mateus Fernandes byrjar sinn fyrsta keppnisleik með Tottenham

Mynd: Tottenham

Nick Woltemade er fremstur hjá Newcastle

Mynd: EPA

Önnur umferð enska deildabikarsins heldur áfram í kvöld en alls eru fjórir leikir á dagskrá.
Newcastle United tekur á móti WBA á St. James' Park og gerir Matthias Jaissle nokkrar breytingar frá jafnteflinu gegn Liverpool um helgina. Ewen Jaouen stendur á milli stanganna en varnarlínan er óbreytt. Jacob Ramsey, Jacob Murphy, Joe Willock, Bazoumana Toure og Nick Woltemade koma allir inn í liðið.
Roberto De Zerbi hrærir einnig upp í liði Tottenham fyrir heimaleikinn gegn Charlton. Mateus Fernandes, sem kom frá West Ham í sumar fyrir 85 milljónir punda, byrjar sinn fyrsta leik en aðeins sex leikmenn halda sæti sínu frá 3-0 tapinu gegn Brentford. Rodrigo Bentancur, Dominic Solanke, Ben Davies og Destiny Udogie koma einnig inn í byrjunarliðið.
Savinho, sem kom frá Man City á dögunum, er á bekknum.
Leikir Tottenham og Newcastle hefjast klukkan 18:45. Á sama mun Bradford mæta Burnley, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor.
Everton heimsækir Preston klukkan 19:00 og gerir David Moyes þrjár breytingar. Michael Keane, James Garner og Tyler Dibling koma inn fyrir Tyrique George, Jarrad Branthwaite og Hayden Hackney.
Lið Newcastle gegn WBA: Jaouen; Dedic, Thiaw, Botman, Hall; Steur, Ramsey; Willock, Toure, Murphy; Woltemade
Lið Tottenham gegn Charlton: Kinsky; Gray, Davies, Van Hecke, Udogie; Bentancur, Moore, Bergvall, Fernandes; Tel, Solanke
Lið Everton gegn Preston: Pickford; Röhl, Tarkowski, Keane, Mykolenko; Garner, Armstrong, Dewsbury-Hall, Dibling; Ndiaye, Barry.