Fotbolti.net
26.08.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

West Ham að láta undan - Brentford lagði fram hátt tilboð

West Ham að láta undan - Brentford lagði fram hátt tilboð
Canon

Mynd: EPA

Brentford er að ganga frá kaupum á El Hadji Malick Diouf vinstri bakverði West Ham.

Svörin frá West Ham fyrr í sumar voru á þá leið að Diouf væri ekki til sölu, en allir leikmenn eru greinilega til sölu og kannski sérstaklega hjá liðum sem falla um deild. Sagt er að Brentford sé að greiða 35 milljónir punda fyrir bakvörðinn og getur sú upphæð hækkað um fimm miljónir punda til viðbótar.

Diouf er 21 árs og heillaði marga á sínu fyrsta tímabili hjá West Ham eftir að hafa komið fyrir 22 milljónir punda frá Slavia Prag síðasta sumar.
Varnarmaður West Ham ekki til sölu
TENGT EFNI

Varnarmaður West Ham ekki til sölu

Hann er landsliðsmaður Senegal og virðist nú á leið til Brentford. Diouf hefur ekki komið við sögu í síðustu tveimur leikjum Hamranna.

Hjá Brentford mun hann hita fyrir framherjann Callum Wilson sem samdi við Brentford í sumar eftir að hafa spilað með West Ham. Nottingham Forest hafði einnig augastað á Diouf.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.