Fotbolti.net
26.08.26 - 13:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Liverpool getur ekki mætt Real á Anfield

Mac Allister hefur skorað í báðum leikjunum gegn Real Madrid.

Mac Allister hefur skorað í báðum leikjunum gegn Real Madrid.

Canon

Mynd: EPA

Á fimmtudag verður dregið í Meistaradeildinni og mun þá koma í ljós hvaða leikir verða spilaðir í deildarkeppninni. Líkt og undanfarin ár taka 36 lið þátt í deildinni og er dregið um hvaða átta andstæðinga hvert lið fær, tvo úr hverjum styrkleikaflokki.

Á heimasíðu Liverpool er vakin athygli á því að liðið getur ekki dregist sem heimalið gegn Real Madrid í drættinum.

Það er vegna þess að liðin hafa mæst á Anfield síðustu tvö tímabil og í reglum UEFA er tekið fram að lið geta ekki dregist saman á sama velli þrjú tímabil í röð.
Liverpool vann leik liðanna í fyrra, Alexis Mac Allister skoraði eina markið. Árið á undan vann Liverpool 2-0 þar sem þeir Cody Gakpo og Mac Allister skoruðu mörkin og bæði Mo Salah og Kylian Mbappe brenndu af vítaspyrnum.

Níu lið eru í hverjum styrkleikaflokki og verða fjögur síðustu umspilseinvígin spiluð í kvöld.

Styrkleikaflokkur 1
PSG
Bayern Munich
Real Madrid
Liverpool
Inter Milan
Manchester City
Arsenal
Barcelona
Atletico Madrid

Styrkleikaflokkur 2
Aston Villa
Manchester United
Borussia Dortmund
Roma
Sporting
Porto
Club Brugge
PSV Eindhoven
Real Betis

Styrkleikflokkur 3*
Feyenoord
Lille
Napoli
RB Leipzig
Villarreal
Shakhtar Donetsk
Galatasaray

Styrkleikaflokkur 3 eða 4 (óráðið)**
Bodo/Glimt
LASK Linz
Sabah
Slavia Prague
Stuttgart
Como
Lens
Sigurvegarinn úr Fenerbahce vs Lyon
Sigurvegarinn úr Dinamo Zagreb vs Viking
Sigurvegarinn úr Slovan Bratislava vs Celje
Sigurvegarinn úr Levski Sofia vs AEK Athens

*Tvö lið eiga eftir að bætast við styrkleikaflokk 3
**Tvö af liðunum munu fara í styrkleikaflokk 3 en hin níu verða í styrkleikaflokki 4
Úr leik liðanna í fyrra.

Úr leik liðanna í fyrra.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.