Hinrik fékk hálftíma í tapi - Níunda tapið hjá Eyrúnu

Hinrik Harðarson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hinrik Harðarson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Framherjinn Hinrik Harðarson fékk hálftíma í 2-1 tapi norska liðsins Odd gegn Asane í B-deildinni í dag.
Hinrik, sem gekk í raðir Odd á síðasta ári, hefur fengið takmarkaðar mínútur með liðinu á þessu tímabili.
Hann hefur ekki enn byrjað leik en þó verið að fá fleiri mínútur í síðustu tveimur leikjum.
Í síðasta leik spilaði hann 59 mínútur og þá fékk 27 mínútur til að spreyta sig í dag. Hann er með eitt mark í tíu leikjum fyrir Odd sem er í 4. sæti deildarinnar með 22 stig.
Eyrún Embla Hjartardóttir og stöllur hennar í varaliði Häcken töpuðu níunda leik sínum í sænsku B-deildinni er liðið lá fyrir KIF Örebro, 3-0, á útivelli.
Varaliðið hefur tapað öllum leikjum sínum á tímabilinu og er því án stiga á botninum.