HM: Skotar rétt mörðu Haítí

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Haítí 0 - 1 Skotland
0-1 John McGinn ('28)
0-1 John McGinn ('28)
Haítí og Skotland áttust við í fyrstu umferð heimsmeistaramótsins í nótt og úr varð nokkuð jafn slagur.
Það var lítið um færi og byrjaði Haítí betur, en John McGinn náði forystunni fyrir Skotland þegar marktilraun hans breytti um stefnu af varnarmanni og endaði í netinu.
Staðan var 0-1 eftir jafnan fyrri hálfleik og var Haítí sterkara liðið í síðari hálfleik, en tókst ekki að skapa mikla hættu.
Besta færi Haítí var skalli eftir fyrirgjöf sem endaði framhjá markinu, en Skotar áttu skot í stöng í fyrri hálfleik.
Lokatölur urðu 0-1 og gætu þessi stig reynst afar dýr fyrir Skota enda eru þeir í gríðarlega erfiðum riðli með Marokkó og Brasilíu. Þeir þurfa minnst eitt stig úr þeim tveimur leikjum til að geta tryggt sér þátttökurétt í útsláttarkeppninni.
Það verður fagnað dátt í Skotlandi í nótt enda er þetta fyrsti leikur landsliðsins á HM síðan í Frakklandi 1998. Þá var þetta fyrsti sigur Skotlands í leik á HM síðan á Ítalíu 1990.

TENGT EFNI
Byrjunarlið Haítí og Skotlands: Fjórði markvörður Forest byrjar
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!