Sjáðu mörkin: Þýskaland leiðir gegn fámennustu þjóð í sögu mótsins

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Þýskaland er 3-1 yfir gegn Curacao eftir fyrri hálfleikinn í fyrstu umferð heimsmeistaramótsins.
Felix Nmecha skoraði glæsilegt mark eftir fallegt samspil við Florian Wirtz til að ná forystunni fyrir Þjóðverja en smáþjóðin svaraði með jöfnunarmarki frá Livano Comenencia, leikmanni FC Zürich í Sviss.
Sjáðu glæsilegt opnunarmark Nmecha
Sjáðu jöfnunarmarkið
Eins og búist var við voru Þjóðverjar talsvert sterkari aðilinn og endurheimtu þeir forystuna þegar Nico Schlotterbeck skallaði hornspyrnu frá Nathaniel Brown, sem er á leið til FC Bayern, í netið.
Sjáðu skallamarkið
Það var svo undir lok uppbótartíma fyrri hálfleiks sem Kai Havertz setti þriðja markið úr vítaspyrnu eftir augljóst brot á Nmecha.
Sjáðu vítaspyrnuna
Síðari hálfleikur er nýbyrjaður og var Jamal Musiala að bæta fjórða marki Þjóðverja við rétt í þessu, svo úrslitin eru svo gott sem ráðin.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!

Mynd: EPA