Fotbolti.net
14.07.05 - 09:00

Sorondo til Charlton (Staðfest)

Hemmi að fá nýjan liðsfélaga

Hemmi að fá nýjan liðsfélaga

Canon
Charlton gengu í dag frá eins árs lánssamningi við Inter Milan í dag. Leikmaðurinn sem þeir rauðklæddu fá er Úrúgvæinn Gonzalo Sorondo, en hann fékk atvinnuleyfi í Englandi í dag. Charlton eru sagðir vonast eftir að geta fengið leikmanninn svo keyptan í enda tímabilsins.
Sorondo spilaði á seinasta tímabili með Crystal Palace, sem féllu í Championship deildina en Alan Churbisley er ánægður með nýjustu viðbótina.

,,Hann sýndi það og sannaði þegar hann spilaði með Palace í fyrra að hann er fullfær um að spila í úrvalsdeildinni og núna hefur hann tækifæri til að sanna sig fyrir okkur."
,,Hann stóð sig vel í fyrra og okkur hlakkar til að fá hann inn í liðið." sagði Churbisley.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.