14.07.05 - 14:10
Magnús Már Einarsson
Emre kominn til Newcastle (Staðfest)

Emre mun leika með númerið 5 á treyju sinni hjá Newcastle.

Tyrneski miðjumaðurinn Emre hefur gengið til liðs við Newcastle frá Inter á um fjórar milljónir punda. Emre sem er 24 ára hefur gert fimm ára samning við Newcastle.
Emre sagði við heimasíðu Newcastle:,,Ég er mjög ánægður með að hafa samið við Newcastle United því þeir eru einn af stærstu klúbbunum í Englandi. Þetta er mjög stórt félag og ég er spenntur yfir því að spila í ensku úrvalsdeildinni."
,,Þetta er ný áskorun sem mér hlakkar mjög mikið til. Ég vil þakka stjóranum Graeme Souness og formanninum Freddy Shepherd fyrir að hafa traust á mér og fá mig til Newcastle. Nú mun ég gefa mitt besta til Newcastle og reyna að koma velgengni til félagsins."
Souness sem einnig hefur fengið Scott Parker frá Chelsea í sumar er mikill aðdáandi Emre og telur Souness að Tyrkinn eigi eftir að gera það gott í Englandi.
Vissir þú að:
Emre verður einn léttasti leikmaðurinn í ensku deildinni en hann er aðeins 68 kíló.