Fotbolti.net
14.07.05 - 18:51
Magnús Már Einarsson

David Pizarro til Inter (Staðfest)

David Pizarro til Inter (Staðfest)
Canon
Inter hefur keypt hefur keypt sókndjarfa miðjumanninn David Pizarro frá Udinese. Það er ennþá óljóst hvað Pizarro kostar Inter en hluti af kaupverðinu er 50% í Goran Pandev en Inter átti þann leikmann ásamt Lazio og nú eiga síðarnefnda liðið og Udinese hann saman.
Pizarro sem er frá Chile hefur gert samning við Inter til ársins 2009 en hann hefur verið að biðja um að komast burt frá félaginu og hann mætti til að mynda ekki til æfinga hjá þeim á dögunum.

Udinese gæti nú fengið í Fabio Liverani miðjumann Lazio til að fylla skarðið sem Pizarro skilur eftir sig en Liverani þekkir Sergio Cosmi þjálfara Udinese síðan þeir voru báðir hjá Perugia.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.