Fotbolti.net
13.07.26 - 22:10
Brynjar Ingi Erluson

Lengjudeildin: Fylkir gekk frá Vestra í fyrri hálfleik

Guðmundur Tyrfingsson skoraði tvö

Guðmundur Tyrfingsson skoraði tvö

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vestri 2 - 5 Fylkir
0-1 Guðmundur Tyrfingsson ('8 )
0-2 Máni Austmann Hilmarsson ('10 )
0-3 Máni Austmann Hilmarsson ('16 )
0-4 Eyþór Aron Wöhler ('35 )
0-5 Guðmundur Tyrfingsson ('45 , víti)
1-5 Þórður Gunnar Hafþórsson ('48 )
2-5 Gunnar Jónas Hauksson ('85 , víti)
Lestu um leikinn
Fylkismenn unnu öruggan 5-2 sigur á bikarmeisturum Vestra í Lengjudeildinni á Kerecis-vellinum á Ísafirði í kvöld. Gestirnir gerðu út um leikinn með fimm mörkum í fyrri hálfleik.

Vestri byrjaði þó mun betur og var líflegra liðið á fyrstu mínútunum. Þórður Gunnar Hafþórsson fékk dauðafæri strax á 2. mínútu og skömmu síðar skoraði Elmar Atli Garðarsson eftir stutta hornspyrnu, en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Fylkismenn svöruðu þessari líflegu byrjun af mikilli hörku og skoruðu þrjú mörk á átta mínútum.

Guðmundur Tyrfingsson braut ísinn á 8. mínútu eftir klaufalegt uppspil Vestramanna. Birkir Eyþórsson vann boltann og kom honum á Guðmund, sem lét ekki segja sér það tvisvar og skoraði.

Máni Austmann Hilmarsson bætti síðan við tveimur mörkum með sex mínútna millibili. Eyþór Aron Wöhler lagði boltann fyrir Mána inni á teignum í fyrra markinu og Bjarki Steinsen vann síðan boltann á miðsvæðinu áður en hann sendi Mána einan í gegn. Hann kláraði færið af öryggi og staðan skyndilega orðin 3-0.

Vestramenn voru rétt byrjaðir að ranka við sér eftir þessar skelfilegu mínútur þegar fjórða markið skall á. Eyþór Aron fékk þá boltann aleinn inni á teignum og stýrði honum í netið.

Guðmundur skoraði sitt annað mark og fimmta mark Fylkis undir lok fyrri hálfleiks. Brotið var á Fylkismanni inni á teignum í miðri hornspyrnu og Guðmundur steig á punktinn. Hann sendi Marvin Darra Steinarsson í vitlaust horn og gulltryggði sigurinn fyrir hlé.

Heimamenn komu mun grimmari út í síðari hálfleikinn og Þórður Gunnar skoraði gegn sínum gömlu félögum. Gunnar Jónas Hauksson sendi boltann fyrir markið og Þórður afgreiddi hann í netið.

Breki Þór Hermannsson fékk gott tækifæri til að minnka muninn enn frekar þegar hálftími var til leiksloka, en Ólafur Kristófer Helgason varði skot hans aftur fyrir endamörk.

Fimm mínútum fyrir leikslok klóruðu Vestramenn meira í bakkann þegar Birkir Eydal fiskaði vítaspyrnu. Gunnar Jónas skoraði svipað mark og Guðmundur gerði fyrr í leiknum fyrir Fylki.

Þetta reyndist síðasta mark leiksins og Fylkismenn sigldu öruggum 5-2 sigri í höfn.

Fylkir er í öðru sæti Lengjudeildarinnar með 27 stig, aðeins einu stigi frá toppnum. Vestri er í fimmta sæti með 21 stig.
Máni Austmann var líflegur í leiknum

Máni Austmann var líflegur í leiknum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding13+2128
2Fylkir13+927
3Þróttur R.13+1224
4HK13+222
5Vestri14-121
6Njarðvík13+420
7Leiknir R.13+119
8Grótta12-319
9ÍR13-712
10Grindavík12-410
11Völsungur13-168
12Ægir14-188
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.