Roma leggur fram tilboð í Garnacho

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalska félagið Roma hefur sent Chelsea fyrsta tilboðið í argentínska vængmanninn Alejandro Garnacho en það er Gianluca Di Marzio sem greinir frá þessum tíðindum í kvöld.
Garnacho er ekki inni í framtíðaráformum Xabi Alonso, nýs stjóra Chelsea. Spánverjinn hefur gefið honum næstu vikur til að finna sér nýtt félag og verður kantmaðurinn ekki með liðinu á undirbúningstímabilinu.
Roma hefur sýnt Garnacho mestan áhuga og hefur nú lagt fram formlegt tilboð í Argentínumanninn.
Rómverjar vilja fá hann að láni út tímabilið og greiða fimm milljónir evra fyrir lánsdvölina. Þá fylgir tilboðinu 35 milljóna evra kaupskylda sem tekur gildi verði ákveðin skilyrði uppfyllt.
Chelsea hefur hins vegar tekið skýrt fram að félagið vilji selja Garnacho í sumar en ekki lána hann. Lundúnafélagið er sagt verðmeta leikmanninn á um 50 milljónir evra.
Roma horfir einnig til fleiri sóknarmanna. Félagið hefur gert tilboð í Diego Moreira hjá Strasbourg og fylgist auk þess með Crysencio Summerville hjá West Ham og Christos Tzolis hjá Club Brugge.