Fotbolti.net
14.07.26 - 20:42
Ívan Guðjón Baldursson

Willum skoraði og Adam hélt hreinu

Willum skoraði og Adam hélt hreinu
Canon

Mynd: NEC Nijmegen

Það komu nokkur Íslendingalið við sögu í leikjum dagsins í Evrópu þar sem Willum Þór Willumsson lék fyrri hálfleikinn í sigri NEC Nijmegen og skoraði á þrettándu mínútu.
Staðan var 1-0 í leikhlé og skipti Nijmegen nánast öllu liðinu út í hálfleik svo Willum lék ekki seinni hálfleikinn. Lokatölur urðu 3-1.

Adam Ingi Benediktsson hélt þá hreinu í æfingaleik hjá AB gegn Helsingborg.

AB vann 2-0 gegn Helsingborg og er þetta flottur sigur í undirbúningi liðsins fyrir komandi átökum í næstefstu deild danska boltans, eftir að hafa unnið þriðju efstu deild á síðustu leiktíð.

Tómas Bent Magnússon var ekki í hóp hjá Hearts sem lagði Arbroath á útivelli, ekki frekar en Kjartan Már Kjartansson hjá Aberdeen sem hafði betur gegn Brora Rangers í skoska deildabikarnum.

Að lokum byrjaði Guðrún Arnardóttir á bekknum í tapi hjá Hammarby í æfingaleik gegn Nordsjælland.

NEC Nijmegen 3 - 1 Varen Nagasaki

AB 2 - 0 Helsingborg

Arbroath 1 - 2 Hearts

Brora Rangers 0 - 2 Aberdeen

Hammarby 1 - 3 Nordsjælland
Willum skoraði og Adam hélt hreinu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Willum skoraði og Adam hélt hreinu
Canon

Mynd: Aðsend

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.