Fotbolti.net
14.08.26 - 14:19
Kári Snorrason

Arteta: Einhverjir leikmenn þurfa líklegast að fara

„Verðum við að sætta okkur við að það eru einhverjir leikmenn sem munu líklega þurfa að fara.“

„Verðum við að sætta okkur við að það eru einhverjir leikmenn sem munu líklega þurfa að fara.“

Canon

Mynd: EPA

Arsenal mætir Man City mætast á Principality leikvanginum í Cardiff á sunnudag í leiknum um Samfélagsskjöldinn. Ekki er leikið á Wembley þar sem sá leikvangur var bókaður fyrir tónleika The Weeknd.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var á blaðamannafundi fyrir skemmstu og var hann þar spurður um hvort að breytingar væru væntanlegar á hópnum.
Hann sagðist vera ánægður með hópinn eins og staðan er í dag en býst þó við að félagið losi einhverja leikmenn. „Augljóslega verðum við að sætta okkur við að það eru einhverjir leikmenn sem munu líklega þurfa að fara.“

Ethan Nwaneri hefur verið orðaður í burtu á láni, Galatasary er á eftir Gabriel Martinelli, samlandi hans Gabriel Jesus er orðaður við Napoli og félagið bauð Myles Lewis-Skelly út.

Þá eru þeir Fabio Vieira og Reiss Nelson að öllum líkindum að fara frá félaginu.

Orðaður við Napoli.

Orðaður við Napoli.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.