Fotbolti.net
14.08.26 - 13:30
Kári Snorrason

Eva læknir lætur Mourinho og Terry heyra það

Eva til hægri.

Eva til hægri.

Canon

Mynd: EPA

Eva Carneiro, fyrrverandi liðslæknir Chelsea, hefur látið í sér heyra eftir að þeir gagnrýndu hana í heimildarmynd Mourinho á Netflix.

Carneiro var í eldlínunni fyrir rúmum tíu árum eftir að hún hlúði að Eden Hazard í óþökk Mourinho. Þjálfarinn segir Belgann ekki hafa verið meiddann og að hana hafi skort leikskilning.
Eva í dómssal vegna brottrekstursins
TENGT EFNI

Eva í dómssal vegna brottrekstursins

Eftir mistök hennar var hún sett út í kuldann og síðar vikið frá störfum. Úr varð mikið fjölmiðlafár og sakaði fyrrverandi eiginmaður hennar um að hafa sofið hjá leikmanni Chelsea.

Eva endaði með að lögsækja Mourinho og Chelsea og fékk hún að lokum skaðabótagreiðslur frá félaginu.

Nú hefur hún aftur tekið til máls á samfélagsmiðlum eftir gagnrýnina í heimildarmyndinni. „11 árum síðar og við erum að endurupplifa það versta. Vonandi græddu þau eitthvað á þessu,“ skrifaði Eva á X.

„Við erum bundin af siðareglum lækna og lögfræðinga. Í alvöru talað, það væri hollt fyrir John Terry að læra leikreglurnar. Það er kominn tími til,“ ritaði Eva í annarri færslu.

Eva, sem er frá Gíbraltar, er enn búsett í Lundúnum en hún rekur íþróttalæknastofu í borginni. Þá hefur hún einnig haslað sér völl sem fjárfestir og er meðeigandi í fótboltaliðinu Lewes sem er í 17-22 neðstu deild í Englandi.

Eva sögð hafa sofið hjá leikmanni Chelsea
TENGT EFNI

Eva sögð hafa sofið hjá leikmanni Chelsea





Eva og Rafa Benitez á góðri stundu.

Eva og Rafa Benitez á góðri stundu.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.