Fotbolti.net
14.08.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Ítalía um helgina - Fjórir Íslendingar í eldlínunni í bikarnum

Albert og félagar spila við Benevento

Albert og félagar spila við Benevento

Canon

Mynd: Fiorentina

Fyrsta umferð ítalska bikarsins er spiluð um helgina, en fjórir Íslendingar verða í eldlínunni.
Albert Guðmundsson og félagar í Fiorentina mæta Benevento klukkan 19:15 í kvöld.

Bjarki Steinn Bjarkason og félagar hans í Sudtirol heimsækja Catanzaro klukkan 16:00 á morgun. Bjarki kom til Sudtirol frá Venezia í sumar en lék einmitt með Catanzaro á láni árið 2022.

Þórir Jóhann Helgason, sem gekk til liðs við Venezia frá Lecce í sumar, verður væntanlega í leikmannahópnum þegar liðið tekur á móti Modena klukkan 18:45.

Mikael Egill Ellertsson verður þá líklega í liði Genoa sem fær Ascoli í heimsókn klukkan 16:30 á morgun.

Leikir helgarinnar:

Föstudagur:
16:00 Parma - Catania
16:30 Cagliari - Arezzo
18:45 Monza - Avellino
19:15 Fiorentina - Benevento

Laugardagur:
16:00 Catanzaro - Sudtirol
16:30 Udinese - Calcio Padova
18:45 Venezia - Modena
19:15 Torino - Carrarese

Sunnudagur:
16:00 Frosinone - Juve Stabia
16:30 Genoa - Ascoli
18:45 Verona - Virtus Entella
19:15 Lazio - Mantova
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.