Fotbolti.net
14.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Telur De Zerbi geta náð því besta fram úr Rashford

O'Hara vill fá Rashford til Tottenham

O'Hara vill fá Rashford til Tottenham

Canon

Mynd: EPA

Jamie O'Hara, fyrrum leikmaður Tottenham, fór aðeins yfir leikmannamarkaðinn í hlaðvarpsþættinum Tottenham Summer Special á Sky Sports.
Tottenham vill bæta við sig vængmönnum áður en félagaskiptaglugginn lokar og hafa tveir leikmenn verið sterklega orðaðir við félagið.

Það eru þeir Savinho hjá Manchester City og Cody Gakpo hjá Liverpool.

„Ég er hrifinn af Savinho og því sem ég hef séð af honum. Þetta hefur ekki alveg gengið upp hjá honum hjá Man City en hann er augljóslega gríðarlega hæfileikaríkur.“

„Sama má segja um Gakpo. Vandamálið er kannski að hann þarf fjögur eða fimm færi til að skora eitt mark en það er samt eitthvað við hann. Ég yrði ekki vonsvikinn ef Tottenham fengi hann,“ sagði O'Hara.

Hann nefndi síðan Marcus Rashford og telur að Roberto De Zerbi gæti náð því besta fram úr honum.

„Það sem ég skil ekki er af hverju við reynum ekki að fá Marcus Rashford. Tottenham ætti að spyrja Manchester United hvað félagið vill fá fyrir hann.“

Ég veit að hann er með 350 þúsund pund á viku og Tottenham ræður kannski ekki við þau laun. Hann er samt ótrúlega góður leikmaður, sérstaklega ef maður fær útgáfuna af honum sem hefur eitthvað að sanna. Ég tel hann enn einn af bestu leikmönnunum í bransanum.“

„Ég held að hann muni spila ef hann verður áfram hjá United og þess vegna skil ég ekki af hverju Tottenham hefur ekki sýnt honum áhuga,“ sagði O'Hara.
Cody Gakpo hefur verið orðaður við Tottenham

Cody Gakpo hefur verið orðaður við Tottenham

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.