Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   mán 14. september 2020 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mbappe lætur PSG vita að hann ætlar að fara næsta sumar
Kylian Mbappe, stórstjarna Paris Saint-Germain, hefur látið félag sitt vita af því að hann ætlar sér að róa á önnur mið næsta sumar.

Það er The Times sem segir frá þessu.

Mbappe er 21 árs gamall og gekk í raðir PSG frá Mónakó árið 2017. Þessi snöggi kantmaður vill spila annað hvort í ensku úrvalsdeildinni eða í spænsku úrvalsdeildinni.

Því munu félög eins og Real Madrid, Barcelona, Liverpool, Manchester United og Manchester City fylgjast vel með stöðu mála.

Mbappe á tvö ár eftir af samningi sínum og verður hann væntanlega ekki ódýr ef hann verður á ferðinni næsta sumar.
Slapp