Fotbolti.net
14.10.26 - 22:32
Brynjar Ingi Erluson
Franski boltinn

Dembele svarar gagnrýnisröddum - „Ég er að spá í að vera í fríi fram í mars“

Dembele svarar gagnrýnisröddum - „Ég er að spá í að vera í fríi fram í mars“
Canon

Mynd: EPA

Ousmane Dembele, sóknarmaður Evrópumeistara Paris Saint-Germain, svaraði gagnrýnisröddum á léttum nótum eftir 4-2 sigur liðsins á Manchester City í kvöld.
Meistaradeildin: Meistararnir frábærir gegn Man City - Dramatísk endurkoma Madrídinga
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Meistararnir frábærir gegn Man City - Dramatísk endurkoma Madrídinga

Dembele og fleiri leikmenn PSG hafa sætt gagnrýni fyrir þá miklu hvíld sem þeir hafa fengið á tímabilinu.

Luis Enrique hefur oft hvílt stærstu stjörnur liðsins í deildarleikjum til að tryggja að þær mæti ferskar til leiks þegar stóru verkefnin bíða, en ekki eru allir jafn hrifnir af þessari nálgun.

Sem dæmi hefur Dembele aðeins verið í byrjunarliðinu í tveimur af sex deildarleikjum PSG á tímabilinu, en hann fékk frí um síðustu helgi og var einnig hvíldur í annarri umferðinni.

Dembele virtist þó ekki hafa miklar áhyggjur af gagnrýninni og gerði heldur betur grín að henni í viðtali við Canal+ eftir leikinn.

„Ég hef nú ekki lesið allt þetta. Svo kom landsleikjahléið og ég fór í frí. Ég er meira að segja að íhuga að biðja um annað frí fljótlega,“ sagði Dembele.

Samir Nasri, fyrrum leikmaður Arsenal og Man City, var í settinu og gekk aðeins lengra með málið, en Dembele hélt áfram á sömu nótum.

„Ég hef verið gagnrýndur í tíu ár og það er ekkert að fara að breytast. Þú þekkir þetta, Samir.“

„Annars var þetta mjög góður leikur og ég elska að spila á þriðjudögum og miðvikudögum, sérstaklega þegar ég er nýkominn úr fríi,“
sagði Dembele og hló.

Hann var svo spurður hvort hann ætlaði sér að taka annað frí á næstunni og hélt áfram að grínast.

„Það er alveg möguleiki. Ég er að spá í að vera bara í fríi fram í mars og sjá svo til, en það er auðvitað þjálfarinn sem ræður því,“ sagði Dembele.
Dembele svarar gagnrýnisröddum - „Ég er að spá í að vera í fríi fram í mars“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.