Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   lau 14. desember 2019 19:42
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Liverpool mætir Monterrey í undanúrslitum HM félagsliða
Liverpool er á leið til Katar til að taka þátt í Heimsmeistarakeppni félagsliða.
Liverpool er á leið til Katar til að taka þátt í Heimsmeistarakeppni félagsliða.
Mynd: Getty Images
Nú er það komið í ljós hvaða liði Liverpool mætir í undanúrslitum Heimsmeistarakeppni félagsliða í næstu viku.

Monterrey frá Mexíkó og Al-Sadd frá Katar mættust í kvöld, ljóst var fyrir leikinn að liðið sem myndi vinna þann leik myndi mæta Liverpool í undanúrslitum.

Niðurstaðan í leiknum var 3-2 sigur Monterrey og Liverpool mætir því mexíkóskuliði í undanúrslitunum þann 18. desember næstkomandi.

Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Flamengo frá Brasilíu og Al Hilal frá Sádí-Arabíu.

Úrslitaleikurinn fer fram þann 21. desember. Heimsmeistarakeppni félagsliða fer að þessu sinni fram í Katar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner