Fotbolti.net
15.01.20 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Hólmar Örn: Þetta er góður gluggi fyrir marga

Hólmar Örn: Þetta er góður gluggi fyrir marga
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Þetta er góður gluggi fyrir marga til að sýna sig," segir landsliðsmaðurinn Hólmar Örn Eyjólfsson.

Hólmar er í íslenska landsliðshópnum sem mætir Kanada á miðnætti og El Salvador á sunnudaginn en í hópnum eru margir leikmenn að stíga sín fyrstu skref með A-landsliðinu.

„Það sem maður sá frá yngri strákunum á æfingu í gær var mjög flott og lofar góðu. Þetta er líka frábært tækifæri fyrir okkur sem hafa minna spilað til að sýna okkur og sanna."
Hólmar Örn er kominn aftur á fulla ferð eftir að hafa glímt við erfið hnémeiðsli í fyrra.

„Mér líst mjög vel á fótboltaárið 2020. Ég er kominn á gott ról og finn lítið fyrir þessu. Það er geggjað að vera kominn aftur í hópinn. Þetta lítur vel út og núna þarf maður að láta að sér kveða."

Hér að neðan má sjá viðtalið í heild.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.