Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   lau 15. febrúar 2020 14:00
Ívan Guðjón Baldursson
Andre Gomes spilar æfingaleik á morgun
Portúgalski miðjumaðurinn Andre Gomes er ekki langt frá því að vera klár í slaginn með Everton, rúmlega þremur mánuðum eftir að hafa meiðst á ökkla.

Gomes mun spila æfingaleik fyrir luktum dyrum á morgun, sunnudag, og gæti komist á varamannabekkinn fyrir leikinn gegn Arsenal í næstu umferð.

Gomes meiddist eftir tæklingu Son Heung-min í byrjun nóvember og þurfti að fara í aðgerð á ökklanum. Óttast var að hann yrði frá út tímabilið en hann hefur náð ótrúlega skjótum bata að mati sérfræðinga.

Carlo Ancelotti hefur ekki fengið tækifæri til að nota Gomes eftir að hann tók við Everton í desember.
Athugasemdir