Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 15. febrúar 2020 08:00
Magnús Már Einarsson
Pepelu Vidal í Víði Garði (Staðfest)
Mynd: Daníel Þór Cekic
Víðir Garði hefur fengið framherjann Pepelu Vidal í sínar raðir frá Fjarðabyggð en bæði þessi lið spila í 2. deild.

Pepelu spilaði fjóra leiki með Leikni Fáskrúðsfirði í Inkasso-deildinni árið 2017 en í fyrra skoraði hann ellefu mörk í 21 leik í 2. deildinni með Fjarðabyggð.

Pepelu er væntanlegur til landsins á næstu vikum en hann hefur leikið með Atlético Antoniano á Spáni í vetur.

„Við bjóðum Pepelu velkominn í Víði og bindum miklar vonir við hann í sumar," segir á Facebook síðu Víðis.

Pepelu er 24 ára gamall en hann kom upp í gegnum unglingastarf Real Betis og lék á sínum tíma leik með aðalliði félagsins í Evrópudeildinni.
Athugasemdir
banner
banner