Fotbolti.net
15.02.25 - 19:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ítalía: Dýrmæt stig í súginn hjá Lazio og Napoli

Giacomo Raspadori

Giacomo Raspadori

Canon

Mynd: EPA

Það var toppslagur í ítölsku deildinni þegar Lazio fékk Napoli í heimsókn. Napoli gat náð fjögurra stiga forystu á Inter á toppnum með sigri og þá gat Lazio komið sér í góða stöðu í baráttunni um Meistaradeildarsæti.
Gustav Isaksen kom Lazio yfir snemma leiks með glæsilegu skoti fyrir utan vítateiginn. Napoli jafnaði metin stuttu síðar þegar Giacomo Rraspadori skoraði eftir laglegt þríhirningaspil við Romelu Lukaku.

Adam Marusic varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark og kom Napoli yfir áður en Boulaye Dia tryggði Lazio stig í dag.

Juventus og Inter eigast við á morgun en Inter getur komist á toppinn með sigri en Juventus getur jafnað Lazio að stigum í baráttunni um 4. sætið.

Lazio 2 - 2 Napoli
1-0 Gustav Isaksen ('6 )
1-1 Giacomo Raspadori ('13 )
1-2 Adam Marusic ('64 , sjálfsmark)
2-2 Boulaye Dia ('87 )

Atalanta 0 - 0 Cagliari

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter9+1525
2Lazio9+1525
3Roma9+1521
4Como9+920
5Milan9+718
6Frosinone9+817
7Napoli9+614
8Juventus9+114
9Torino9013
10Cagliari9-513
11Bologna9011
12Atalanta9-111
13Genoa9-510
14Lecce9-99
15Sassuolo9-88
16Monza9-67
17Udinese9-95
18Fiorentina9-105
19Parma9-105
20Venezia9-133
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.